3.deild karla - b-riðill
14.12.2011 20:54:28 / jupiter

Búið að draga í deildarbikarnum.

Dregið var í dag í deildarbikarnum . C-deild karla: Leikin einföld umferð. Sigurvegarar riðlanna komast í úrslitakeppni mótsins, samtals 4 lið. Keppni hefst í mars. Við erum í riðli 2 og ber þar hæst að mótherjar okkar verða m.a grafarvogsliðið Björninn sannkallaður nágrannaslagur þar á ferð. Riðill 2: Björninn Grundarfjörður Kári Stál-Úlfur Vængir Júpíters Kostnaður við deildarbikarinn er enginn og því um að ræða fría æfingarleiki . Held að leikdagar skýrist ekki fyrr en eftir áramót en keppni í C-deild hefur yfirleitt hafist seint í mars. Það er greinilegur sparnaður hér á blog.central ekki hægt að setja inn myndir lengur og tómt vesen með uppsetningu á einföldum hlutum legg til að við finnum okkur betra vefsvæði á komandi ári.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 20:53:02 / jupiter

Búið að draga í deildarbikarnum.

Dregið var í dag í deildarbikarnum . C-deild karla: Leikin einföld umferð. Sigurvegarar riðlanna komast í úrslitakeppni mótsins, samtals 4 lið. Keppni hefst í mars. Við erum í riðli 2 og ber þar hæst að mótherjar okkar verða m.a grafarvogsliðið Björninn sannkallaður nágrannaslagur þar á ferð. Riðill 2: Björninn Grundarfjörður Kári Stál-Úlfur Vængir Júpíters Kostnaður við deildarbikarinn er enginn og því um að ræða fría æfingarleiki . Held að leikdagar skýrist ekki fyrr en eftir áramót en keppni í C-deild hefur yfirleitt hafist seint í mars.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2011 11:07:45 / jupiter

Update !

Sælir drengir.

Nú styttist í lokahófið okkar. Það stefnir í glimrandi mætingu og er stemmingin mjög góð í mannskapnum.

Það er smá breyting á planinu. Við ætlum að rukka 1000kr á kjaft. Það er í raun og veru mjög vel sloppið fyrir mat og með því.

Menn eru vinsamlegast beðnir um að leggja inn á reikning 0324-26-460110 og kt 460110-1220.

Setjið comment þegar þið eruð búnir að greiða.

Já og staðsetningin á lokahófinu er laugarásvegur 1, 104 rvk.

Takk fyrir og góða ferð.

» 15 hafa sagt sína skoðun

21.10.2011 15:48:45 / jupiter

Lokahóf Vængjanna.

Góðan daginn piltar.

Það er búið að negla niður dagsetningu varðandi lokahófið okkar. Laugardagurinn 19 nóvember varð fyrir valinu. Við munum halda það heima hjá Gumma Auðunns "höfðingja".
Þar er mætingin klukkan 6 stundvíslega þar sem það verður haldinn fundur um framhald Vængjanna. Eftir það ætlum við að grilla, drekka og skemmta okkur saman.
Það verður einhver kostnaður fyrir þessu, en því fleirri , því ódýrara og skemmtilegrar verður það.

Æskilegt er að menn séu búnir að skrá sig fyrir mánudagskvöldið svo hægt verði að gera ráðstafanir varðandi kaup á öli og með því.

Hlakka til að sjá ykkur !

» 21 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 14:59:21 / jupiter

Framhaldið

Framhaldið hjá Vængjum Júpiters verður rætt á fundi í byrjun Nóvember. Haldið bara áfram að hafa það gott og nánari upplýsingar koma inn á síðuna í Nóv. Vill annars þakka öllum fyrir sumarið leikmönnum sem og þeim sem komu að liðinu á einn eða annan hátt. Lengi lifi Vængir.

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2011 21:30:40 / jupiter

LUIZ HENRIQUE FOLCHINE

  


Dear friends, My name is Luiz Henrique, I am brazilian and I collect sports wear. I would like to know if you can send me a jersey of Vaengir Jupiters. I will be satisfied to have a home or away jersey. It can be a brand new or used one. I also have a blog called Show de Camisas ( Shirts Show ) ( http://showdecamisas.blogspot.com/ ), which has the purpose to divulge jerseys of several teams. I use sites of social network like forums, orkut, facebook and twitter to divulge the articles about the jerseys. So I get to reach a great number of people into various forms of digital midia. If possible, confirm it to me and I will send my full address. Thanks your attention. With best regards, LUIZ HENRIQUE ROSSELLI FOLCHINE SAO JOSE DO RIO PRETO / SP ( BRASIL ) lh_luizhenrique@hotmail.com


Hello, I still have not received any response about email, I'm waiting, thank you. Best regards,


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2011 23:16:46 / jupiter

Hvað segir Kári : Vængir- KB

Vængir Júpíters - KB Jæja herrar mínir, þá er þetta búið í bili. Það var óþarfi að missa Breiðholtsdrengina svona fram úr sér, en það er lítið við því að gera þegar "rangeygður" línuvörður gefur þeim tvö mörk. Annars fannst mér dómarinn sá langbesti sem ég hef séð dæma í 3. deildinni til þessa, hann var ekkert að veifa spjöldum þó menn misstu eitthvað út úr sér í hita leiksins, en það má alveg búast við að hann dæmi í efri deildum á næsta ári. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Vængjunum en um leið lærdómsríkt, því skora ég á þá,.... nei krefst þess að þeir haldi áfram á fullu gasi, því ef ákvörðun verður tekin um að hætta þá er það eins og að henda gulli í ruslið, því hæfileikinn sem býr í liðinu er svo mikill að aðeins þarf að leifa honum að "blómstra". Ég þakka fyrir mig að svo stöddu og vonast eftir að fá að sjá Vængina hressa og káta á vellinum á næsta tímabili.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2011 12:54:32 / jupiter

Lokahóf ?

Sælir drengir.

Er eitthver stemming fyrir því að halda lokahóf næstu helgi ? Verðum að loka þessu sumri með lokahófi.

Endilega látið vita ef þið getið mætt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2011 14:36:27 / jupiter

Hópurinn.

Sælir.

Eftirfarandi leikmenn eiga að mæta í Egilshöllina kl.18

Jommi
Gísli
Bjarni
Mikki
Fjalar
Bjarni
GM
Gunni J
Helgi
Gummi
Biggi
Hörður
Fannar
Maggi
Keegan

Forföll ekki leyfð.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.08.2011 18:44:58 / jupiter

Varðandi leikinn á morgun !

Sælir piltar.

Nú er mikilvægt að þeir sem komast ekki í leikinn á morgun láti vita. Erum búnir að lenda of oft í því að forföll eru boðuðu of seint. Þannig að endilega látið vita. Hópurinn kemur svo inn á hádegi á morgun.


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.08.2011 00:48:16 / jupiter

Markaregn-Vængir : Frábært comeback á Ásvöllum.


,,Þar kom að því að maður fékk að sjá gamla Vængja baráttuandann aftur og þvílík tilþrif."
(Kári Jónsson)




-Helgi átti frábæran leik og skoraði gull af marki-



Það var ekki bjart yfir þeim 10 einstaklingum sem mættir voru upp í klefann á Ásvöllum stuttu fyrir leik þjálfaralausir og ekki með markmann(Gísli hefur samt verið frábær í þessum 2 leikjum sem hann hefur staðið í markinu). Staða sem var óhugsandi daginn fyrir leik að við ættum að fara byrja manni færri þegar 15 leikmenn áttu að vera klárir í leikinn. Fyrir mig persónulega voru skrefin afskaplega þung út úr klefanum þar sem  þetta var hlutur sem ég bar ábyrgð á.

Ingi Finnsson var mættur aftur eftir langt hlé og ræða hans fyrir leikinn skipti sköpum þar sem hann fór vel yfir hlutina fyrir leik og hristi vel upp í mönnum. Frábær ræða í alla staði og nákvæmlega sem við þurftum við þessar erfiðu aðstæður. Það er oft í svona aðstæðum sem kemur í ljós úr hverju menn eru gerðir hvort þeir sé tilbúnir að leggja sig 110%  fram og berjast fyrir félagann jafnvel þó á móti blási.


Fyrri hálfleikur:

Við lögðum upp með að vera þéttir til baka og verjast allir fyrir aftan miðju og beita skyndisóknum. Við vissum að Jóhann myndi mæta í hálfleik og þá myndi staðan batna. Markaregn voru mun meira með boltann og sköpuðu sér nokkur færi í upphafi leiks sem þeir fóru afar ílla með . Besta færi hálfleiksins kom á 20 mínótu þegar við fengum skyndisókn Biggi sendir góða sendingu milli bakvarðar og miðvarðar þar sem Bjarni stingur sér á milli aleinn kominn í gegn ekki varnarmaður í 10 metra fjarlægð einn gegn markverði en lætur hann verja frá sér með löppinni ílla farið með mjög gott færi. Stuttu seinna sleppur leikmaður Markaregns gegn af hægri kanti kominn nánast upp að markteig með fast skot niðri sem Gísli ver meistaralega með löppunum í horn. Stórbrotin markvarsla hjá Gísla. Eftir sem leið á hálfleikinn  urðum við betri og munaði oft afar litlu að Biggi og Bjarni slyppu einir í gegn gegnum flata og hæga Markaregns vörnina. Helgi og Hörður voru flottir á miðjunni og áttu nokkur ágætis skot. Rétt áður en góður dómari leiksins flautaði til hálfleiks fékk Maggi  reynslubolti erfiða stungusendingu frá Bjarna sem hann náði að taka á mót með hausnum kominn einn í gegn en færið var þröngt og markvörðurinn lokaði vel og kom í veg fyrir mark.
0-0 í hálfleik og við bara bærilega sáttir 11 maðurinn mættur og Nonni mættur að stjórna.



-Fagmaður sem stendur sig   alltaf vel  á vellinum sem og í brekkunni.-

Seinni hálfleikur :

Það var eins og menn héldu bara að þetta væri komið þegar við vorum loksins komnir með fullskipað lið fyrstu 15 mínóturnar voru mjög slakar í seinni hálfleik fengum á okkur 2 ódýr mörk og útlitið var ekki bjart eftur að menn hefði keyrt sig mikið út manni færri.

En þá hófst sennilega bestu 30 mínóturnar okkar í sumar  við færðum liðið ofar á völlinn og byrjuðum að pressa þá stíft við það fór allt í rugl hjá Markregni sem náðu upp engu spili og við stjórnuðum leiknum gjörsamlega. Biggi var óheppin með að skora ekki eftir gott skot sem markvörðurinn varði í horn .  Stuttu síðar átti Helgi  Frím þvílika  neglu í slána boltinn fór hátt upp í loftið og féll  síðan niður við markteig þar sem Hinn fertugi nýliði Magnús gerði mjög vel að fylgja eftir og skora . 2-1 og allt opið en nánast í næstu sókn skora Markaregn moð mark og aftur orðinn tveggja markamunur 3-1. Við héldum pressunni áfram og BIGGI og Hörður áttu báðir fín skot sem voru nálægt því að fara inn. Það var bara eitt lið á vellinum og það voru Vængir. Eftir þunga sókn berst boltinn út á hægri kantinn þar sem Maggi kemur með góðan kross fyrir þar sem Bjarni stangar hann í netið nánast óverjandi fyrir Markvörðinn:) 3-2 . Mark og stoðsending komin hjá Magga í sínum fyrsta leik í byrjunarliði ekki amalegt það og   við aftur kominn í góðan sjéns. Við héldum áfram að þjarma að Hafnfirðingunum og fengum fjölmarga krossa fyrir  og hornspyrnur sem munaði oft afar litlu að yrðu að marki.  Þegar var komið fram yfir 90 mínótur fengum við hornspyrnu allir leikmenn vængja komnir inn í teig m.a Gísli markvörður. Markaregn nær að hreinsa við vinnum boltann aftur erum við það að komast í gegn þegar brotið er á Helga rétt fyrir utan teig . Helgi Beckham tekur spyrnuna sjálfur og hamrar boltanum stöngin inn MARK !!!!!!!!!!! 3-3 og glæsilegasta endurkoma í sögu Vængja í KSÍ deildum staðreynd. Menn fagna vel á eftir frábæru stigi


-Jóhann mætti í hálfleik beint af handboltaæfingu-

Er gríðarlega stoltur af öllum sem spiluðu þennan leik. Ingi , Maggi  og Jóhann voru flottir í sínum fyrstu leikjum í byrjunarliði í sumar. Gísli og vörnin voru heilt yfir að standa sig mjög vel .
Hörður og Biggi voru flottir í sókninni og börðust og sköpuðu fjölmörg færi. Helgi Frímanns var frábær  í þessum leik og steig virkilega upp í seinni hálfleik. 

MOM: Helgi Frímanns stoðsending og stórkostlegt mark.


Sterkt stig í ljósi þess að við byrjuðum einungis með 10 menn og lentum 2-0 og 3-1 undir í seinni hálfleik. Sýnir vel að við getum komið til baka ætti að gefa okkur gott sjálfstraust fyrir leikinn gegn KB sem mun skipta miklu máli um lokniðurstöðu í riðlinum. KB menn verða að vinna til að komast í úrslitakeppnina og við getum endað í 5 sæti með sigri. Ef við  töpum   leiknum gæti 7. sætið orðið okkar hlutskipti sem við sættum okkur ekki við.  

Það er mikill heiður að fá að klæðast græna búningum og tilheyra þessum hóp . Framundan er lokaleikur í viðburðarríku sumri  og nú verða allir að gíra sig inn á þennnan leik . Meiddir menn að harka af sér. Geta hvílt sig fram að jólum eftir leikinn .  Mætum allir og berjumst saman allir sem einn og endum þetta sumar á jákvæðu nótunum .

Lengi lifi Vængir Júpiters.

Ekki bara félag heldur fjölskylda.












» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2011 10:57:05 / jupiter

Æfing í kvöld 20:30



Frábært comeback í seinasta leik í kvöld fylgjum við því eftir.

Leikur síðan gegn KB á fimmtudag.

Umfjöllun um leikinn dettur inn í kvöld.

Melda sig

» 16 hafa sagt sína skoðun

14.08.2011 23:48:42 / jupiter

Hvað segir Kári : Markaregn-Vængir





Markaregn 3 - Vængir Júpíters 3
Haukaplastið í Hafnafirði.
12. ágúst 2011

Jæja Vængir!
Þar kom að því að maður fékk að sjá gamla Vængja baráttuandann aftur og þvílík tilþrif.
10 menn í fyrri-hálfleik og ellefu í þeim seinni en enginn á bekknum. Byrja að fá á
sig 2 ódýr mörk
og vera svo komnir 3-1 undir en ná síðan að jafna á seinustu mínútunum og "dóminera"
algjörlega
seinasta hálftíma leiksins með sínu flotta  "Vængja-spili" þar sem menn keyrðu sig
algjörlega út.
Það var gaman að horfa á þennan leik og þakka ég fyrir það um leið og ég hvet
Vængina til að halda
áfram á sömu braut.

                               /kári

e.s.
Mikið rosalega er gott að fá "alvörudómara" til að dæma í 3. Deildinni af og til
eins og gerðist í gærkveldi.
Það setur allt annan svip á leikinn, enda voru Siggi Óli og félagar flottir.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2011 11:15:26 / jupiter

Hópurinn: Markaregn- Vængir. Ásvellir mæting 18:00


Mikilvægasti leikur sumarsins  framundan. Framtíð klúbbsins að veði. Eftirfarandi leikmenn eiga að mæta á Ásvelli í Vígahug kl 18:00.

GM
Hrabbi
Helgi Rokk
Jóhann(Hinriks)
Ingi Finns
Jói F
Mikki
Hinrik
Helgi F
Bjarni
Gísli
Hörður
Biggi
Gummi
Jón Halldór
Maggi

Byrjunarlið tilkynnt í klefa.






-Inginn er mættur  aftur -

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 169 dögum
Markaregn- Vængir